Almenn verkefni 2022
Almenn verkefni 2022
Heiti verkefnis : | Mat á fórnarkostnaði ferðatíma | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Markmiðið með verkefninu er að leggja í undirbúningsvinnu til þess að hægt sé að meta fórnarkostnað ferðatíma, eða tímavirði, fyrir íslenskar aðstæður með hagrænum matsaðferðum. Skoða á fremstu erlendar vísindarannsóknir, þar sem notendur samgöngumannvirkja greina frá því hvað þeir vilja borga fyrir að ferðatími styttist og tafir í umferð minnki. Kortlagt verður hvað rannsóknirnar eiga sameiginlegt. Skoðað verður hvaða þættir hafa áhrif á greiðsluvilja mismunandi notenda- og samfélagshópa. Verða rannsóknirnar rýndar með það að leiðarljósi að þróa matsaðstæður sem leiða til þess að íslenskir vegfarendur sýni hvað þeir vilja í raun borga fyrir að ferðatími styttist og draga muni úr umferðartöfum. Matið á bæði að ná til lítilla og mikilla breytinga á tíma. Verkefnið er liður í stærra rannsóknarverkefni sem snýr að því að gera grunnrannsóknir á þáttum sem hafa áhrif á ábata notenda í kostnaðar- og ábatamati samgönguverkefna. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Markmiðið með verkefninu er að leggja í undirbúningsvinnu til þess að hægt sé að meta fórnarkostnað ferðatíma, eða tímavirði, fyrir íslenskar aðstæður með hagrænum matsaðferðum. Skoða á fremstu erlendar vísindarannsóknir, þar sem notendur samgöngumannvirkja greina frá því hvað þeir vilja borga fyrir að ferðatími styttist og tafir í umferð minnki. Kortlagt verður hvað rannsóknirnar eiga sameiginlegt. Skoðað verður hvaða þættir hafa áhrif á greiðsluvilja mismunandi notenda- og samfélagshópa. Verða rannsóknirnar rýndar með það að leiðarljósi að þróa matsaðstæður sem leiða til þess að íslenskir vegfarendur sýni hvað þeir vilja í raun borga fyrir að ferðatími styttist og draga muni úr umferðartöfum. Matið á bæði að ná til lítilla og mikilla breytinga á tíma. Verkefnið er liður í stærra rannsóknarverkefni sem snýr að því að gera grunnrannsóknir á þáttum sem hafa áhrif á ábata notenda í kostnaðar- og ábatamati samgönguverkefna. |